Vangaveltur um fjölnýtingu knattspyrnuhallanna hafa verið nokkuð áberandi á þessari síðu enda er það eitthvað sem hefur lítið tíðkast hérlendis. Hugmyndin um að stjórnvöld og sveitarfélög í samvinnu við íþróttasérsambönd fjárfesti í færanlegu stúkukerfi og færanlegu gólfefni er spennandi. Þá er auðvitað verið að tala um fjárfestingu til nokkurra ára eða þar til búið er að taka nýja fjölnota íþróttahöll í notkun. Þegar ný fjölnota íþróttahöll verður komin í gagnið á höfuðborgasvæðinu opnast möguleiki að nota færanlega stúkukerfið í knattspyrnuhöllunum úti á landi þar sem hægt verður að halda stóra íþróttaviðburði. Þetta yrði semsagt fjárfesting til framtíðar fyrir landið allt. Tökum sem dæmi knattspyrnuhöllina, Fífuna, í Kópavoginum. Þar er hægt að koma fyrir færanlegum áhorfendastúkum sem rúma geta 5 - 6 þúsund áhorfendur. Hún er ekki stærsta knattspyrnuhöllin á Íslandi en samt sem áður getur hún tekið við áhorfendastúkum sem geta rúmað nokkur þúsund manns. Hér að neðan eru t