Fara í aðalinnihald

Jón Hjaltalín vildi fá teikningar af þessari keppnishöll með sér heim til Íslands

Þegar Ísland tók þátt í B-Heimsmeistarakeppninni í handbolta í Frakklandi árið 1989 stóð umræðan um nýja þjóðarhöll sem hæst á Íslandi. Stjórnvöld höfðu skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis að ný 7 – 8.000 sæta fjölnota íþróttahöll yrði reist fyrir HM 95 og voru forráðamenn HSÍ duglegir að skoða mögulegar fyrirmyndir keppnishalla erlendis frá.

Ísland spilaði frábærlega í téðri B-keppni og stóð að lokum uppi sem sigurvegari en auk gullverðlaunanna höfðu forráðamenn HSÍ mikinn áhuga á að taka með sér heim teikningar af einni af íþróttahöllum keppninnar.

Íþróttahöllin heitir Rhénus Sport og er staðsett í Strasbourg þar sem Íslendingar spiluðu í öðrum milliriðli B-keppninnar. Í Rhénus Sport vannst m.a. stórkostlegur sigur á Vestur-Þýskalandi sem er enn þann dag í dag einn merkasti einstaki sigurleikur íslenska karlalandsliðsins.

Jón Hjaltalín Magnússin, þáverandi formaður HSÍ, var mjög hrifinn af Rhénus Sport og falaðist eins og áður sagði eftir teikningum af höllinni.

,,Fararstjórar íslenska hópsins byrjuðu þegar á því að stika um húsið, þegar þangað kom og fóru að gæla við það að fá teikningar af því. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, Davíð Sigurðsson, húsvörður íþróttahússins að Varmá og Gunnar Þór Jónsson, læknir og formaður landsliðsnefndar, ræddu um að fá teikningar af húsinu að hafa með sér heim,” stóð í frétt Morgunblaðsins þann 21. febrúar 1989.

Ekki er vitað hvort Jón Hjaltalín tók með sér heim teikningar af Rhénus Sport en höllin sem tekur 6.200 manns í sæti gekkst undir viðamiklar endurbætur árið 2002 og er í dag íþróttahöll sem er mikið í notkun.

Mynd: Strasbourg.eu.

Mynd: Ticketmaster.fr.

Mynd: Info-Stades.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Nýtt körfuboltahús Hauka, Ólafssalur

Körfuknattleikslið Hauka mun spila á nýjum heimavelli á komandi leiktíð Domino's deildar karla og kvenna. Um er að ræða sérhæft körfuknattleikshús sem mun nær eingöngu þjónusta körfuknattleiksdeild Hauka. Um er að ræða einstakt hús á íslenska vísu og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort önnur félög fylgi í kjölfarið. Keppnissalurinn er sérhannaður fyrir körfubolta og stúkan mun rúma 1100 manns en samkvæmt fréttum geta allt að 2.000 manns komist fyrir með því að raða fólki þétt á svölunum. Engin hefðbundin leikklukka verður í húsinu heldur verður stöðu, tíma og stigaskori varpað upp á LED skjái í sitthvorum enda vallarins. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Erni Eyjólfssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins, og birtist í frétt blaðsins um íþróttamannvirkið síðastliðið vor. Þá var áhorfendaaðstaðan ekki komin til landsins en hún ætti að vera kominn upp fyrir upphaf körfuknattleikstímabilsins í haust. Mynd: Örn Eyjólfsson, Fréttablaðið. Mynd: Örn Eyjólfsson, F

Nýtt íþróttahús í Njarðvík?

Íþróttahúsið í Njarðvík, Ljónagryfjan svokallaða, er elsta keppnishúsið sem er í notkun í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Húsið var tekið í notkun árið 1973 og stendur við grunnskóla Njarðvíkur. Ef mið er tekið af íþróttahúsum sem byggð hafa verið hérlendis á síðasta áratug eða eru í byggingu er ljóst að mannvirkið er allt of lítið; ekki er nægilegt rými umhverfis keppnisgólfið og þá er takmörkuð aðstaða fyrir áhorfendur. Húsið er einfaldlega of lítið fyrir starfsemi félagsins. Vitaskuld er Ljónagryfjan fallegt og skemmtilegt íþróttahús og er það eitt af djásnum íslensks körfubolta en því miður er það ekki boðlegt lengur sem heimavöllur eins sigursælasta körfuknattleiksfélags landsins. ,,Ljónagryfjan" í Njarðvík. Skjáskot: Ja.is. Mikil íbúafjölgun Árið 1973 voru íbúar Njarðvíkur 1.700 en í dag búa yfir 6.000 manns í Njarðvíkurhluta Reykjanesbæjar. Fjölgun íbúa í Njarðvík nemur því um 250% á tímabilinu og er ljóst að þörf er á aðgerðum af hálfu bæjaryfirvalda sem

Laugardalshöllin: gömul, eldri, elst

Þegar fjórar síðustu undankeppnir í EM í handbolta eru skoðaðar kemur í ljós að Laugardalshöll er langelsta íþróttahöllin sem er notuð að staðaldri í keppnisleikjum í Evrópu. Fjölnota íþróttahöll. Alls fóru fram 12 landsleikir í í Laugardalshöll í undankeppni EM á þessu tímabili, eða allir heimaleikir Íslands. Auk Laugardalshallarinnar fóru á þessu tímabili fram landsleikir í 12 öðrum íþróttahöllum sem reistar voru fyrir 1970. Engin þeirra hýsti jafnmarga leiki og Laugardalshöllin en þær hallir sem komust næst Laugardalshöllinni hýstu fjóra leiki á þessu tímabili, eða að meðaltali einn leik í hverri undankeppni. Þær hallir sem hýstu fjóra landsleiki voru Yunost Sports Palace (1967) í Chelyabinsk í Rússlandi, Dvorana Mirza Delibasic (1969) í Sarajevo í Bosníu og Minsk Sports Palace (1966) í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Þessar þrjár íþróttahallir eru allar handan austantjaldsins en Ísland er eina Vestur-Evrópu þjóðin þar sem landsleikir í handknattleik eru leiknir að s