Fara í aðalinnihald

Laugardalshöllin: gömul, eldri, elst

Þegar fjórar síðustu undankeppnir í EM í handbolta eru skoðaðar kemur í ljós að Laugardalshöll er langelsta íþróttahöllin sem er notuð að staðaldri í keppnisleikjum í Evrópu.

Fjölnota íþróttahöll.

Alls fóru fram 12 landsleikir í í Laugardalshöll í undankeppni EM á þessu tímabili, eða allir heimaleikir Íslands.

Auk Laugardalshallarinnar fóru á þessu tímabili fram landsleikir í 12 öðrum íþróttahöllum sem reistar voru fyrir 1970. Engin þeirra hýsti jafnmarga leiki og Laugardalshöllin en þær hallir sem komust næst Laugardalshöllinni hýstu fjóra leiki á þessu tímabili, eða að meðaltali einn leik í hverri undankeppni.

Þær hallir sem hýstu fjóra landsleiki voru Yunost Sports Palace (1967) í Chelyabinsk í Rússlandi, Dvorana Mirza Delibasic (1969) í Sarajevo í Bosníu og Minsk Sports Palace (1966) í Minsk í Hvíta-Rússlandi.

Þessar þrjár íþróttahallir eru allar handan austantjaldsins en Ísland er eina Vestur-Evrópu þjóðin þar sem landsleikir í handknattleik eru leiknir að staðaldri í höll sem er eldri en 30 ára. Laugardalshöllin er yfir 50 ára gömul!!

Í þessum fjórum undankeppnum voru tveir leikir spilaðir í Hovet (1962) í Stokkhólmi, þrír leikir í Olympiahalle í Innsbruck (1963) í Austurríki, einn leikur í Sparkassen Arena (1951) í Kiel í Þýskalandi og einn leikur í ÖVB Arena (1964) í Bremen í Þýskalandi.

Við verðum þó að hafa í huga að í tilfellum þessarra fjögurra vestur-evrópsku íþróttahalla; Hovet, Olympiahalle, Sparkassen Arena og ÖVB Arena hefur orðið mikil enduruppbygging á ytra byrði og öllu innvolsi. Þær endurbætur sem þar hafa átt sér stað síðustu áratugi eru miklu meiri og ítarlegri en þær sem hafa átt sér stað á Laugardalshöllinni.

Laugardalshöllin er þó ekki elsta höllinn (enn) sem hýsti landsleiki í þessum fjórum undankeppnum en sjö íþróttahallir voru reistar fyrir daga Laugardalshallarinnar. Í flestum tilvikum var þó um að ræða einn stakan leik í höllunum yfir þetta tímabili en ekki 12 leiki líkt og var tilfellið í Laugardalshöll.

Elsta íþróttahöllin var Kauno Sporto Halé (1939) í Kaunas í Litháen.

Samanburður við Norðurlönd
Það tíðkast á Norðurlöndum, líkt og víða, að landsleikir gegn minni spámönum eru leiknir í minni íþróttahöllum og eru landsleikir Norðurlandaþjóðanna oft spilaðir í 2 – 3 iþróttahöllum í undankeppnunum. Mikilvægir landsleikir gegn stærri andstæðingum eru oftast spilaðir í stærstu höllunum.

Með því að bera saman meðalaldur þessarra íþróttahalla við aldur Laugardalshallarinnar, kemur í ljós að Finnar spila í langyngstu höllunum, þar sem meðalaldurinn er 8,7 ár. Svíar koma næst en þeir spila í höllum sem eru að meðaltali 17,75 ára. Íþróttahallir Dana sem notaðar voru á þessu tímabili voru að meðatali 24,5 ára og 25,4 ára hjá Norðmönnum. Íslendingar spiluðu að sjálfsögðu í 53 ára gamalli Laugardalshöll.

Eitt að lokum en 58% íþróttahallanna sem spilað var í í þessum fjórum undankeppnum voru reistar eftir árið 2000.

Þessu til viðbótar er hægt að rifja upp að Laugardalshöllin var ELST allra keppnishallanna í undankeppni HM í handbolta í síðasta mánuði.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Nýtt körfuboltahús Hauka, Ólafssalur

Körfuknattleikslið Hauka mun spila á nýjum heimavelli á komandi leiktíð Domino's deildar karla og kvenna. Um er að ræða sérhæft körfuknattleikshús sem mun nær eingöngu þjónusta körfuknattleiksdeild Hauka. Um er að ræða einstakt hús á íslenska vísu og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort önnur félög fylgi í kjölfarið. Keppnissalurinn er sérhannaður fyrir körfubolta og stúkan mun rúma 1100 manns en samkvæmt fréttum geta allt að 2.000 manns komist fyrir með því að raða fólki þétt á svölunum. Engin hefðbundin leikklukka verður í húsinu heldur verður stöðu, tíma og stigaskori varpað upp á LED skjái í sitthvorum enda vallarins. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Erni Eyjólfssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins, og birtist í frétt blaðsins um íþróttamannvirkið síðastliðið vor. Þá var áhorfendaaðstaðan ekki komin til landsins en hún ætti að vera kominn upp fyrir upphaf körfuknattleikstímabilsins í haust. Mynd: Örn Eyjólfsson, Fréttablaðið. Mynd: Örn Eyjólfsson, F

Nýtt íþróttahús í Njarðvík?

Íþróttahúsið í Njarðvík, Ljónagryfjan svokallaða, er elsta keppnishúsið sem er í notkun í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Húsið var tekið í notkun árið 1973 og stendur við grunnskóla Njarðvíkur. Ef mið er tekið af íþróttahúsum sem byggð hafa verið hérlendis á síðasta áratug eða eru í byggingu er ljóst að mannvirkið er allt of lítið; ekki er nægilegt rými umhverfis keppnisgólfið og þá er takmörkuð aðstaða fyrir áhorfendur. Húsið er einfaldlega of lítið fyrir starfsemi félagsins. Vitaskuld er Ljónagryfjan fallegt og skemmtilegt íþróttahús og er það eitt af djásnum íslensks körfubolta en því miður er það ekki boðlegt lengur sem heimavöllur eins sigursælasta körfuknattleiksfélags landsins. ,,Ljónagryfjan" í Njarðvík. Skjáskot: Ja.is. Mikil íbúafjölgun Árið 1973 voru íbúar Njarðvíkur 1.700 en í dag búa yfir 6.000 manns í Njarðvíkurhluta Reykjanesbæjar. Fjölgun íbúa í Njarðvík nemur því um 250% á tímabilinu og er ljóst að þörf er á aðgerðum af hálfu bæjaryfirvalda sem