Fara í aðalinnihald

Borgarráð vill mynda starfshóp um þjóðarleikvang fyrir innanhúsíþróttir

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, lagði til á fundi borgarráðs þann 10. apríl síðastliðinn að tekið verði undir ábendingar HSÍ og KKÍ um nauðsynlega aðstöðu sérsambanda fyrir innanhúsíþróttir og skilgreiningu á þjóðarleikvangi fyrir innanhúsíþróttir.

Borgarráð lagði í kjölfarið fram tillögu þess efnis að settur verði upp starfshópur ráðuneyta, Reykjavíkurborgar, HSÍ og KKÍ til að annast nauðsynlegar viðræður um málið.

Í bréfi dagsettu þann 28. mars, 2018 höfðu Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, ítrekað nauðsyn þess að byggður verði nýr þjóðarleikvangur fyrir innanhúsíþróttir.

,,Höllin var byggð sem þjóðarleikvangur og þar hafa allir helstu íþróttaviðburðir farið fram sl. 50 ár. En tímarnir breytast og fyrir margt löngu hætti höllin að uppfylla alþjóðlegar kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra leikja bæði í handknattleik og körfuknattleik," segir m.a. í bréfinu.

Auk þess kemur fram í bréfinu að formennirnir hafi átt fund með mennta- og menningarmálaráðherra um aðkomu ríkisvaldsins að byggingu nýs þjóðarleikvangs fyrir innanhúsíþróttir.

,,Við leitum því til Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar um þátttöku í viðræðum um byggingu þjóðarleikvangs. Við gerum okkur grein fyrir að slík bygging og rekstur er ekki eingöngu á ábyrgð Reykjavíkurborgar þó ljóst sé að slík bygging verður ekki reist án þátttöku og stuðnings borgarinnar."

Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu þessa máls.

https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/laugardalur_-_thjodarleikvangur_fyrir_innanhusithrottir_dags._10._april_2018_r17110135.pdf

Fjölnota íþróttahöll.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Nýtt körfuboltahús Hauka, Ólafssalur

Körfuknattleikslið Hauka mun spila á nýjum heimavelli á komandi leiktíð Domino's deildar karla og kvenna. Um er að ræða sérhæft körfuknattleikshús sem mun nær eingöngu þjónusta körfuknattleiksdeild Hauka. Um er að ræða einstakt hús á íslenska vísu og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort önnur félög fylgi í kjölfarið. Keppnissalurinn er sérhannaður fyrir körfubolta og stúkan mun rúma 1100 manns en samkvæmt fréttum geta allt að 2.000 manns komist fyrir með því að raða fólki þétt á svölunum. Engin hefðbundin leikklukka verður í húsinu heldur verður stöðu, tíma og stigaskori varpað upp á LED skjái í sitthvorum enda vallarins. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Erni Eyjólfssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins, og birtist í frétt blaðsins um íþróttamannvirkið síðastliðið vor. Þá var áhorfendaaðstaðan ekki komin til landsins en hún ætti að vera kominn upp fyrir upphaf körfuknattleikstímabilsins í haust. Mynd: Örn Eyjólfsson, Fréttablaðið. Mynd: Örn Eyjólfsson, F

Nýtt íþróttahús í Njarðvík?

Íþróttahúsið í Njarðvík, Ljónagryfjan svokallaða, er elsta keppnishúsið sem er í notkun í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Húsið var tekið í notkun árið 1973 og stendur við grunnskóla Njarðvíkur. Ef mið er tekið af íþróttahúsum sem byggð hafa verið hérlendis á síðasta áratug eða eru í byggingu er ljóst að mannvirkið er allt of lítið; ekki er nægilegt rými umhverfis keppnisgólfið og þá er takmörkuð aðstaða fyrir áhorfendur. Húsið er einfaldlega of lítið fyrir starfsemi félagsins. Vitaskuld er Ljónagryfjan fallegt og skemmtilegt íþróttahús og er það eitt af djásnum íslensks körfubolta en því miður er það ekki boðlegt lengur sem heimavöllur eins sigursælasta körfuknattleiksfélags landsins. ,,Ljónagryfjan" í Njarðvík. Skjáskot: Ja.is. Mikil íbúafjölgun Árið 1973 voru íbúar Njarðvíkur 1.700 en í dag búa yfir 6.000 manns í Njarðvíkurhluta Reykjanesbæjar. Fjölgun íbúa í Njarðvík nemur því um 250% á tímabilinu og er ljóst að þörf er á aðgerðum af hálfu bæjaryfirvalda sem

Laugardalshöllin: gömul, eldri, elst

Þegar fjórar síðustu undankeppnir í EM í handbolta eru skoðaðar kemur í ljós að Laugardalshöll er langelsta íþróttahöllin sem er notuð að staðaldri í keppnisleikjum í Evrópu. Fjölnota íþróttahöll. Alls fóru fram 12 landsleikir í í Laugardalshöll í undankeppni EM á þessu tímabili, eða allir heimaleikir Íslands. Auk Laugardalshallarinnar fóru á þessu tímabili fram landsleikir í 12 öðrum íþróttahöllum sem reistar voru fyrir 1970. Engin þeirra hýsti jafnmarga leiki og Laugardalshöllin en þær hallir sem komust næst Laugardalshöllinni hýstu fjóra leiki á þessu tímabili, eða að meðaltali einn leik í hverri undankeppni. Þær hallir sem hýstu fjóra landsleiki voru Yunost Sports Palace (1967) í Chelyabinsk í Rússlandi, Dvorana Mirza Delibasic (1969) í Sarajevo í Bosníu og Minsk Sports Palace (1966) í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Þessar þrjár íþróttahallir eru allar handan austantjaldsins en Ísland er eina Vestur-Evrópu þjóðin þar sem landsleikir í handknattleik eru leiknir að s