Fara í aðalinnihald

Þessi glæsilega íþróttahöll á að kosta 2,5 milljarða króna

Ný og glæsileg fjölnota íþróttahöll, Olive Arena, mun á næstu mánuðum rísa í Jaén á Spáni og er ætlunin að byggingu hennar verði lokið fyrir lok næsta árs.

Um er að ræða gríðarlega metnaðarfullt mannvirki en alls munu vera 6.589 sæti í höllinni.

Íbúafjöldi Jaén er um 125 þúsund manns en íbúar Reykjavíkur og umliggjandi höfuðborgarsvæðis eru rúmlega helmingi fleiri.

Ef tekin yrði ákvörðun um að reisa fjölnota íþróttahöll hérlendis á morgun, myndi ég skoða þetta verkefni gaumgæfilega; þ.e. skipulags- og hönnunarlið auk kostnaðarlið.

Mynd: Europa Press/Diputación De Jaén.

Mynd: Europa Press/Diputación De Jaén.

Mynd: Europa Press/Diputación De Jaén.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Nýtt íþróttahús í Njarðvík?

Íþróttahúsið í Njarðvík, Ljónagryfjan svokallaða, er elsta keppnishúsið sem er í notkun í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Húsið var tekið í notkun árið 1973 og stendur við grunnskóla Njarðvíkur. Ef mið er tekið af íþróttahúsum sem byggð hafa verið hérlendis á síðasta áratug eða eru í byggingu er ljóst að mannvirkið er allt of lítið; ekki er nægilegt rými umhverfis keppnisgólfið og þá er takmörkuð aðstaða fyrir áhorfendur. Húsið er einfaldlega of lítið fyrir starfsemi félagsins. Vitaskuld er Ljónagryfjan fallegt og skemmtilegt íþróttahús og er það eitt af djásnum íslensks körfubolta en því miður er það ekki boðlegt lengur sem heimavöllur eins sigursælasta körfuknattleiksfélags landsins. ,,Ljónagryfjan" í Njarðvík. Skjáskot: Ja.is. Mikil íbúafjölgun Árið 1973 voru íbúar Njarðvíkur 1.700 en í dag búa yfir 6.000 manns í Njarðvíkurhluta Reykjanesbæjar. Fjölgun íbúa í Njarðvík nemur því um 250% á tímabilinu og er ljóst að þörf er á aðgerðum af hálfu bæjaryfirvalda sem ...

Nýtt körfuboltahús Hauka, Ólafssalur

Körfuknattleikslið Hauka mun spila á nýjum heimavelli á komandi leiktíð Domino's deildar karla og kvenna. Um er að ræða sérhæft körfuknattleikshús sem mun nær eingöngu þjónusta körfuknattleiksdeild Hauka. Um er að ræða einstakt hús á íslenska vísu og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort önnur félög fylgi í kjölfarið. Keppnissalurinn er sérhannaður fyrir körfubolta og stúkan mun rúma 1100 manns en samkvæmt fréttum geta allt að 2.000 manns komist fyrir með því að raða fólki þétt á svölunum. Engin hefðbundin leikklukka verður í húsinu heldur verður stöðu, tíma og stigaskori varpað upp á LED skjái í sitthvorum enda vallarins. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Erni Eyjólfssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins, og birtist í frétt blaðsins um íþróttamannvirkið síðastliðið vor. Þá var áhorfendaaðstaðan ekki komin til landsins en hún ætti að vera kominn upp fyrir upphaf körfuknattleikstímabilsins í haust. Mynd: Örn Eyjólfsson, Fréttablaðið. Mynd: Örn Eyjólfsson, F...

Þjóðarhöllin í Andorra er helmingi stærri en Laugardalshöllin

Íbúafjöldinn í Andorra er 85 þúsund, samanborið við þá 330 þúsund einstaklinga sem búa á Íslandi. Þrátt fyrir það er þjóðarhöll Andorramanna í innanhúsíþróttum mun stærri en þjóðarhöll Íslendinga, Laugardalshöllin. Þjóðarhöllin í Andorra sem ber heitið Poliesportiu d'Andorra tekur 5.000 manns í sæti og er því rúmlega helmingi stærri en Laugardalshöllin. Hún er auk þess mun yngri en Poliesportiu d'Andorra var vígð árið 1991 en Laugardalshöllin var tekin í notkun haustið 1965. Hvað segir það okkur?