Fara í aðalinnihald

Svartfjallaland reisti glæsilega þjóðarhöll árið 2009

Þegar Svartfjallaland öðlaðist sjálfstæði árið 2006 vaknaði íþróttahreyfingin upp við þann vonda draum að mörg af helstu íþróttamannvirkjum landsins voru í niðurníðslu.
Þjóðin hafði gengið í gegnum miklar þrengingar í kjölfar stríðsátaka á svæðinu og þrátt fyrir að helsta keppnishöll landsins Moraca Sports Center hafði verið endurbætt að hluta þótti mönnum tími til kominn að reisa nýja fjölnota keppnishöll.
Moraca Sports Center var reist árið 1978 og var barn síns tíma og því tóku stjórnvöld ákvörðun um að reisa nýja alhliða keppnishöll. Moraca höllin var þó ekki tekin úr notkun og er enn notuð í dag þegar bosníska körfuboltalandsliðið spilar.
Ákveðið var að ráðast í framkvæmdir á nýrri höll og varð niðurstaðan Topolica Sport Hall en byggingu hennar lauk árið 2009 og þykir hún nútímaleg fjölnota íþróttahöll sem Svartfellingar geta verið stoltir af.



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Kristianstad Arena í Svíþjóð

Svíar eru leiðandi afl í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Norðurlöndum og í Kristianstad þar sem búa um 40.000 þúsund manns er að finna gríðarlega vandaða fjölnota íþróttahöll. Höllin sem um ræðir ber heitið Kristianstad Arena og var tekin í notkun árið 2010. Hún tekur 4.700 áhorfendur í sæti og var ein af keppnishöllunum á HM í handbolta í Svíþjóð 2011. Byggingarkostnaður hallarinnar nam um 4,5 milljörðum íslenskra króna á núvirði og var fjármögnunin alfarið í höndum sveitarfélagsins Kristianstad. Þó svo að höllin taki einungis 4.700 manns í sæti er hönnunin slík að svo virðist sem hún rúmi mun fleiri áhorfendur. Þetta er gríðarlega skemmtilegt og metnaðarfullt mannvirki sem 40.000 manna bær getur verið stoltur af. Þess má geta að höllin er heimavöllur IFK Kristianstad, þar sem Ólafur Andrés Guðmundsson, handknattleikskappi, hefur gert garðinn frægan á undanförnum árum.   Skjáskot: Google Earth. Mynd: Petter Arvidson/Bildbyrån.

Árið var 1971 og þröngt setin Laugardalshöll var við það að springa

Handknattleikur er þjóðaríþrótt Íslendinga, á því leikur enginn vafi, og ríkti sannkallað handboltafár í Laugardalshöllinni árið 1971 þegar hluti Íslandsmótsins fór fram á fjölum hennar. Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar það ár segir frá því að höllin væri margsinnis troðfull af áhangendum sem flyktust þangað til að berja goðin augum. Svo segir um atganginn í Höllinni miðvikudagskvöldið 17. febrúar árið 1971 þegar tveir stórleikir á Íslandsmótinu fóru þar fram, annars vegar leikur ÍR og Víkings og hins vegar viðureign Vals og FH. ,, Alls keyptu rúmlega 3.300 manns sig inn á leikina og boðsgestir og aðrir munu hafa verið um 200, svo alls munu um 3.500 manns hafa fylgst með þessum spennandi leikjum ,“ stóð í fréttinni. ,, Vel kann að vera áhorfendur í Laugardalshöllinni þetta kvöld hafi verið nokkur hundruðum fleiri en gott rúm var fyrir og kvörtuðu nokkrir yfir því að þeir hefðu lítið séð. Hins vegar er það annað en gaman að þurfa að vísa áhugasömu fólki frá, og því ...

Nýtt körfuboltahús Hauka, Ólafssalur

Körfuknattleikslið Hauka mun spila á nýjum heimavelli á komandi leiktíð Domino's deildar karla og kvenna. Um er að ræða sérhæft körfuknattleikshús sem mun nær eingöngu þjónusta körfuknattleiksdeild Hauka. Um er að ræða einstakt hús á íslenska vísu og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort önnur félög fylgi í kjölfarið. Keppnissalurinn er sérhannaður fyrir körfubolta og stúkan mun rúma 1100 manns en samkvæmt fréttum geta allt að 2.000 manns komist fyrir með því að raða fólki þétt á svölunum. Engin hefðbundin leikklukka verður í húsinu heldur verður stöðu, tíma og stigaskori varpað upp á LED skjái í sitthvorum enda vallarins. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Erni Eyjólfssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins, og birtist í frétt blaðsins um íþróttamannvirkið síðastliðið vor. Þá var áhorfendaaðstaðan ekki komin til landsins en hún ætti að vera kominn upp fyrir upphaf körfuknattleikstímabilsins í haust. Mynd: Örn Eyjólfsson, Fréttablaðið. Mynd: Örn Eyjólfsson, F...