Fara í aðalinnihald

Færslur

Ný þjóðarhöll rís brátt í Færeyjum - Teiknuð af norskum arkitekt

Á meðan mál nýrrar þjóðarhallar á Íslandi eru í algjörri óvissu og nánast ekkert að gerast í þeim efnum, virðist annað vera uppi á teningnum hjá frændum vorum í Færeyjum. Líkt og margir vita þurftu Færeyingar að spila heimaleiki sína í síðustu undankeppni EM í handbolta utan Færeyja en íþróttahöllin á Hálsi í Þórshöfn, sem hefur verið á undanþágu um nokkurt skeið, telst nú vera óhæf til að hýsa alþjóðlega keppnisleiki í handbolta. Laugardalshöll okkar Íslendinga er einnig á undanþágu og bíða menn nú milli vonar og ótta um að EHF skelli ekki í lás þar líka. Hinn ískaldi raunveruleiki er hins vegar sá að það gæti gerst, fyrr en síðar. Færeyingar hafa brugðist við þeim leiðindagjörningi að vera úthýst úr íþróttahöllinni á Hálsi með því undirbúa byggingu nýrrar og stórrar þjóðarhallar. Norskir fjölmiðlar greina frá því að arkitektinn Stefan Ekberg hafi þegar verið fenginn til að teikna hið nýja mannvirki. ,,Forvinnan á að klárast fyrir jól,“ skrifaði staðarmiðillinn Möre í Noregi fy...

Glæsileg, fjölnota íþróttahöll rís í Tatabánya í Ungverjalandi

Borgaryfirvöld í Tatabánya í Ungverjalandi hafa tekið ákvörðun um að reisa nýja fjölnota íþróttahöll í borginni og mun handknattleiksfélagið Grundfos Tatabánya njóta góðs af henni. Grundfos Tatabánya er gamalgróið félag sem varð síðast ungverskur meistari árið 1984 en alls hefur félagið fjórum sinnum verið handhafi ungverska meistaratitilsins. Á síðustu fjórum árum hefur félagið hafnað í þriðja sæti deildarinnar á eftir risunum Telekom Veszprém og Pick Szeged og er það von manna að með tilkomu nýju hallarinnar muni félagið gera harða atlögu að titlaeinokun hinna fyrrnefndu félaga. Áætlanir gera ráð fyrir að hin nýju íþróttahöll muni rúma 6.000 áhorfendur í sæti og af kynningarefni að dæmi er ljóst að um stórglæsilegt mannvirki er að ræða. Helsta íþróttahöll Tatabánya er Földe Imre Sportcsarnok og er hún komin vel til ára sinna. Hún var tekin í notkun árið 1976 og þykir úrelt og stenst ekki kröfur sem gerðar eru til nútímaíþróttamannvirkja. Íbúafjöldi Tatabánya er um 66 þúsund...

Uppbygging íþróttamannvirkja - þörf á kerfisbreytingu?

Leiða má líkum að því að ákveðin vatnaskil séu framundan í uppbyggingarmálum þjóðarleikvanga á Íslandi en reglugerð um viðurkenningu slíkra íþróttamannvirkja tók gildi árið 2018. Markmið hennar er m.a. að tryggja að skilgreindir þjóðarleikvangar standist gæðakröfur sem gerðar eru til þess konar mannvirkja. En þátturinn er lítur að fjármögnun uppbyggingarinnar er hins vegar ennþá mjög óljós. Allt sem viðkemur íþróttum á Íslandi heyrir undir menntamálaráðuneytið og þar með talið öll innviðauppbygging. Hins vegar er lítið fjallað um uppbyggingu íþróttamannvirkja í íþróttalögunum. Í 8. grein laganna segir að veita megi framlög úr íþróttasjóði til: ,,sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar.” Í stóra samhenginu er hér um sáralitlar upphæðir að ræða. Það þarf ekki að fara í grafgötur með þá staðreynd að hið opinbera hefur lítið tekið þátt í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Íslandi. Íþróttasjóður ríksins var s...

Skeifan - þjóðarhöll sem skipulagshvati

Þegar landinn ferðast til útlanda og þá sérstaklega til stórra borga í Bandaríkjunum er mjög líklegt að hann muni koma auga á stórar íþróttahallir og leikvanga á rölti sínu í miðborgum þessarra borga. Þessi mannvirki eru afurðir stefnubreytingar sem átti sér stað í Norður-Ameríku undir lok síðustu aldar en þá hafði uppbygging stórra íþróttamannvirkja verið á jaðri þéttabýlissvæðanna í rúma þrjá áratugi. Á jaðrinum og fyrir utan hann var að finna víðáttumikil, óbyggð svæði sem þýddi að þar var hægt að byggja gríðarlega stór mannvirki umlukin bílastæðaflæmum. Ein helsta ástæða þess að ákveðið var færa uppbyggingu íþróttamannvirkja úr miðborgunum út á jaðarinn um miðja síðustu öld var tilkoma einkabílsins auk þess sem helsti markhópurinn, þ.e. millistéttar íþróttaáhugamaðurinn, var sífellt að flytjast úr miðborgunum og út í úthverfin. Eins og áður sagði snerist þessi þróun við á níunda áratug síðustu aldar. En annar angi þessarar stefnubreytingar náði til uppbyggingar íþróttamann...

Mikil uppbygging þjóðarleikvanga fyrirhuguð í Lettlandi

Ef áætlanir ganga eftir mun Lettland eyða á næstu árum rúmum 13 milljörðum íslenskra króna í endurbætur og uppbyggingu nýrra íþróttamannvirkja sem eru og verða skilgreind sem þjóðarleikvangar. Ljóst er að nýr þjóðarleikvangur fyrir knattspyrnu mun rísa innan fárra ára og leysa af hólmi Skonto Stadions sem var tekinn í notkun árið 2000. Sá völlur þótti aldrei vel heppnaður sem þjóðarleikvangur og er hann m.a. opinn á aðra skammhliðanna þar sem bílastæðaplan er staðsett. Þá hefur þjóðarleikvangurinn í frjálsum íþróttum, Daugavas Stadions, gengið í gegnum miklar og gagngerar endurbætur sem þýðir að þar geta nú farið fram stór og veigamikil frjálsíþróttamót. Leikvangurinn var í nokkurri niðurníslu en eftir enduruppbygginguna er ljóst að um er að ræða glæsilegan frjálsíþróttaleikvang. Stjórnvöld í Lettlandi kynntu síðan fyrir stuttu hugmyndir að mikilli uppbyggingu á nærsvæði Daugavas Stadions og er ljóst að þar mun rísa hágæða, alhliða íþróttasvæði. Þarna er þeirra Laugardalur...

Forsætisráðherrann sem stóð við loforðið

Íbúar Mið-Ameríkuríkisins Belís sprungu úr stolti þegar körfuboltalandslið þjóðarinnar vann til silfurverðlauna í Mið-Ameríkukeppninni í körfubolta, COCABA Championships, árið 2009. Liðið hafði beðið nauman ósigur fyrir Mexíkó í úrslitaleiknum og voru liðsmennirnir hylltir sem þjóðhetjur við heimkomuna enda í fyrsta skipti sem þjóðin vann til verðlauna í liðakeppni á alþjóðavettvangi. Við þetta tilefni gaf þáverandi forsætisráðherra landsins, Dean O. Barrow, landsmönnum loforð. ,,Ég ætla að lofa því hér með að ég mun finna fjármagn til að byggja fyrsta flokks körfuknattleikshöll. Þetta afrek körfuboltalandsliðsins á ekki minna skilið .“ Þáverandi þjóðarleikvangur innanhússíþrótta í Belís var reistur undir lok 8. áratugarins og stóðst ekki þær kröfur og reglugerðir sem gerðar eru til nútímaíþróttahalla. Engum hugnaðist að þetta frækna körfuboltalandslið þyrfta að spila við þess konar aðstæður. Engum. Níu árum eftir þennan frækna árangur var nýr þjóðarleikvangur fyrir innanhúsí...

Færeyingar undirbúa byggingu nýrrar þjóðarhallar

Það vakti athygli síðastliðið haust þegar evrópska handknattleikssambandið (EHF) felldi úr gildi undanþágu sem gerði Færeyingum kleift að spila keppnisleiki sína í íþróttahöllinni á Hálsi í Þórshöfn. Þess í stað spiluðu Færeyingar fyrsta heimaleik sinn í undankeppni EM gegn Danmörku í íþróttahöll danska úrvalsdeildarliðsins Skjern í október. Í kjölfarið hafa skapast miklar umræður um málið meðal ráðamanna og almennings í Færeyjum og er ljóst að nýr þjóðarleikvangur fyrir innanhúsíþróttir mun rísa í Þórshöfn á næstu árum. Ákveðið hefur verið að ný höll rísi á svæði sem kallast Stóratjörn í norðurjaðri Þórshafnar. Þar var gert ráð fyrir mikilli uppbyggingu fyrir rúmum 10 árum en þær áætlanir frestuðust í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Nú hefur verið ákveðið að endurvekja þessi áform og mun ný fjölnota íþróttahöll rísa á svæðinu. Einnig kom til greina að reisa nýja höll á helsta íþróttasvæði Þórshafnar þar sem núverandi þjóðarhöll og þjóðarleikvangurinn í knatts...